AD
Slide 1 of 26
fr_20220803_182616.jpg

Upplýsingaóreiða um kynfræðslu og hatursorðræða gegn hinsegin fólki

Mannréttindi

Ingunn Lára Kristjánsdóttir︱ingunnlara@ruv.is

Slide 2 of 26
person holding smartphone





Upplýsingaóreiða á samfélagsmiðlum

Villandi og rangar upplýsingar um kynfræðslu og hinseginfræðslu hafa verið á dreifingu um samfélagsmiðla.



Námsefni hefur verið tekið úr samhengi og stillt upp á vafasaman hátt.

Umræða um hinsegin fólk hefur einkennst af nokkurri heift síðustu mánuði.

Hópur sem beitir sér gegn réttindum trans fólks hefur látið á sér kræla.

Upplýsingaóreiðan á samfélagsmiðlum er svo mikil að stjórnvöld hafa fundið sig knúna til að birta yfirlýsingu.

Slide 3 of 26
woman carrying white and green textbook

Er kynfræðsla og hinseginfræðsla sami hluturinn?

Slide 4 of 26
woman in gray sweater holding white and yellow sticky notes

Kynfræðsla

Hinseginfræðsla

Hinseginfræðsla er ekki kynfræðsla. Slík fræðsla fjallar um fjölbreytileikann,

hugtakaskýringar, virðingu og mikilvægi þess að vinna gegn fordómum.


Kynfræðsla snýst um að efla kynheilbrigði barna og unglinga þar sem rýnt er í

félagslega, tilfinningalega, líkamlega og andlega þætti. Slík fræðsla er einnig

hugsuð sem forvörn gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni.


Slide 5 of 26
multicolored textile

Um hinsegin málin

Það hefur orðið bakslag í baráttu hinsegin fólks, segja fulltrúar Samtakanna '78,

á sama tíma og stuðningur eykst.


Hatursorðræða gegn hinsegin fólki hefur blandast inn í gagnrýni á fræðslu í grunnskólum. Umræðan byggist á upplýsingaóreiðu.

Slide 6 of 26
Úr Kastljósi 12. september
Slide 7 of 26

Samtökin sjá um mannréttindamiðaða hinseginfræðslu.

Hinseginfræðsla er ekki það sama og kynfræðsla.

Nánar um Samtökin '78

Samtökin '78 eru hagsmunasamtök alls hinsegin fólks.

fr_20220402_176384.jpg
Slide 8 of 26
man and woman sitting on chairs



Sjá Samtökin '78 um kynfræðslu í grunnskólum?

Slide 9 of 26
closeup photo of multicolored stripe flag

Hvað er kennt í hinseginfræðslu?

Hinseginfræðsla er í höndum starfsfólks skólanna, hjúkrunarfræðinga, starfsfólks mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Samtakanna 78.

Á yngsta stigi

Fjallað um að fólk sé alls konar og fjölskyldur séu alls konar og það sé í góðu lagi.

Á miðstigi

Útskýring á hugtökum eins og samkynhneigð, tvíkynhneigð, trans og intersex og áhersla lögð á að allt fólk á rétt á búa við öryggi og virðingu.

Á unglingastigi

Rætt um hugtök, bent á hvar ráðgjöf og stuðning er að finna auk þess sem umræða um fordóma og virðingu er sett í forgrunn.

Slide 10 of 26
blue green and red thread on persons palm

Réttindi hinsegin fólks eru mannréttindi

Slide 11 of 26

Hvað segja lögin?

fr_20221206_189999.jpg

Íslensk stjórnvöld eru skuldbundin að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu.

Samkvæmt íslenskum lögum, aðalnámskrá grunnskóla, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum.

Allir einstaklingar eiga rétt á að skilgreina kyn sitt og miða lögin þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar.

Lesa nánar
Slide 12 of 26
shallow focus photography of books

Um kynfræðslu

Slide 13 of 26
woman pointing at paper

Íslensk ungmenni hafa lengi gagnrýnt skort á kynfræðslu á Íslandi og 

hversu vandamálamiðuð hún er.

Nokkur atriði um kynfræðslu

Ungt fólk hefur greiðan aðgang að misgóðum upplýsingum um kynlíf á netinu. 

Rannsóknir hafa sýnt að klámáhorf meðal ungmenna á Íslandi er töluvert.

Rannsóknir tengja áhorf kláms við ýmsa áhættuþætti og verri líðan ungmenna.

Kynfræðsla er mikilvægur liður í baráttunni gegn kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum og stuðlar að kynheilbrigði ungmenna. 

Slide 14 of 26
beard,face,head,person,photography,portrait,adult,male,man,jacket
Lesa nánar
Slide 15 of 26
closeup photo of multicolored stripe flag

Hvað er kennt í kynfræðslu?

Kynfræðsla snýst um að efla kynheilbrigði ungs fólks þar sem rýnt er í félagslega, tilfinningalega, líkamlega og andlega þætti.

  • að þekkja einkenni kynþroskans
  • að kunna að setja og virða mörk
  • að rýna í kynhlutverk, kynvitund og kynhneigðir
  • að eiga í heilbrigðum samskiptum og samböndum
  • að þekkja tilfinningar sínar og geta orðað þær upphátt
  • að þekkja líkama sinn, vonir og væntingar
  • að sýna ábyrgð í kynlífi svo sem með því að forðast kynsjúkdómasmit eða óráðgerðar þunganir
Slide 16 of 26
advertisement,poster,baby,person,face,head,glasses,text,massage,book



Vika6

Í viku6 er starfsfólk grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur hvatt til að bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu.

Vika6 er svo árlegt kynheilbrigðisátak.

Slide 17 of 26
rvk-plakat-vika-sex-2021-page-001.jpg



Unglingar borgarinnar kjósa þema á hverju ári. 

Veggspjöld, sem sett voru upp í skólum samhliða fræðslunni, hafa verið á dreifingu um samfélagsmiðla ásamt villandi skilaboðum.

Reykjavíkurborg birti leiðréttingu á umræddum rangfærslum.

Hver sér um viku6?

Jafnréttisskóli Reykjavíkur heldur utan um viku6.

Sjá svör Reykjavíkurborgar

„Það er EKKI verið að hvetja börn til að búa til kynferðislegar fantasíur.“

Slide 18 of 26

Bók tekin úr samhengi

Bókin Kyn, kynlíf og allt hitt er hluti af fræðslu ætluð yngsta- og miðstigi.

Skjáskot úr bókinni, tekin úr samhengi, hafa farið á dreifingu um samfélagsmiðla. 

page0001-1.png
Hér er hægt að lesa bókina í heild sinni

Bókin var gagnrýnd fyrir að innihalda efni um sjálfsfróun, stinningu kynfæra og snertingu á endaþarm.

Forstjóri menntamálastofnunar segir þetta breytta tíma, nemendur hafi snjallsíma í skólum. Heilbrigðara sé að börn fái upplýsingar og ræði þessi mál við fullorðið fólk.

Slide 19 of 26

Hvað finnst unglingum um kynfræðslu?

Slide 20 of 26
198134396_2468987486578357_1909522847907484869_n.jpg

Vilja leiðrétta hluti sem börn hafa lært í gegnum klám

Veggspjöld í grunnskólum Reykjavíkur hafa vakið athygli. Þar má finna línu um BDSM-hneigð. 

Um veggspjaldið segja Samtökin '78 að alls konar spurningar hafi komið frá ungu fólki um BDSM eftir þátttöku Hatara í Eurovision. Var því ákveðið að útskýra þetta flókna fyrirbæri á einföldu máli.

Veggspjaldið sem um ræðir er ætlað unglingadeildum.

Sviðsstjóri skóla- og frístundarsviðs segir að þarna sé meðal annars verið að miða að því að leiðrétta hluti sem börn hafa lært í gegnum klámáhorf.

Slide 21 of 26
advertisement,poster,person,face,head

Hér er veggspjaldið

Slide 22 of 26

Hópur deilir villandi upplýsingum um fræðsluefni

Hópur sem kallar sig Samtökin 22, áður LGB teymið, hefur látið á sér kræla.

Reykjavíkurborg varaði skóla borgarinnar við hópnum og hefur tilkynnt heimsókn hans í skólann til lögreglu. 

Fulltrúar Samtakanna 22 mættu í Langholtsskóla og tóku myndbönd af starsfsfólki og mótmæltu efni veggspjalda.

Samtökin hafa einkum gagnrýnt fræðslu um trans börn og deilt villandi greinum um fræðsluefni. 

Lesa nánar
Slide 23 of 26
blue and pink flag



Trans er kynvitund

– Ekki geðsjúkdómur

Allir einstaklingar njóta óskoraðs réttar til

  • að skilgreina sjálfir kyn sitt
  • viðurkenningar á kyni sínu, kynvitund og kyntjáningu
  • að þroska persónuleika sinn í samræmi við eigin kynvitund
  • líkamlegrar friðhelgi og sjálfræðis varðandi breytingar á kyneinkennum

úr lögum um kynrænt sjálfræði

Slide 24 of 26
20230915_instastory_381359.jpg
Lesa greinina
Slide 25 of 26
20230912_instastory_391485.jpg
Lesa greinina
Slide 26 of 26
boy in black hoodie sitting on chair
Lestu yfirlýsingu mennta- og barnamálaráðuneytis

Einhverju nær?

Featured in this story
Transcript

Looks like your cart is empty. Why not go ahead and add some products in?

  • Get Link
  • Email
  • Facebook
  • LINE
  • LinkedIn
  • Pinterest
  • Tumblr
  • Twitter
  • WhatsApp

Navigating Stories

Use the following gestures to browse story content

Go forward
Tap the screen
Pause
Press and hold
Go back
Tap the left edge
Move between stories
Swipe left of right
Link copied!
https://stories.storifyme.com/stories/ruv-is-0290371/hinsegin-baratta-96438